sunnudagur, 10. febrúar 2013

10. febrúar 2013

Smá læripása til að henda inn æfingu dagsins og hrikalegri góðri uppskrift!

Ég er þannig að ég get ekki haldið mér á beinubrautinni matarlega séð nema eiga eitthvað hollt sem er gott að fá sér á milli mála, eitthvað sem er ekki bagðlaust og leiðinlegt. Það er nefnilega ástæðan fyrir því að rosalega margir gefist upp á hollum lífstíl því þeim finnst maturinn svo óspennandi og leiðinlegur.

Þannig að seinustu vikur er ég búin að eyða smá tíma í eldhúsinu að prófa mig áfram með hollari uppskriftum sem eru svo góðar að manni finnst maður eiginlega bara vera að borða eitthvað óhollt og ætla ég að deila einni af þeirri uppskrift með ykkur í dag. Passið ykkur samt á því að hver og ein muffa er alveg slatta kalóríurík þannig að það má ekki missa sig í gleðinni og borða fimm í einu(allavega ekki ef markmiðið er að grenna sig;)

Bananaspilts muffins.

1 heil egg
½ dl eggjahvítur (Ég á alltaf eggahvítur í brúsa, ½ dl er ca 1 stór eða 2 litlar eggjahvítur)
Ca 1 dl hunang (Það má líka nota Stevia, venjulegan sykur eða agave. Passið ykkur þá bara á mælieiningunni)
3 meðalstórir bananar
1 dl kókoshveiti
2 dl gróft spelt
2 tsk lyftiduft
50 – 60 gr 70% súkkulaði (ég notaði minntu, ef það finnst ekki er gott að nota minntudropa í staðinn)

Súkkulaði er skorið í spænir og lagt til hliðar. Bananar eru stappaðir í mauk og lagðir til hliðar.
Egg, eggjahvítur og hunang þeytt saman þar til létt, þá er bönunum bætt útí og allt blandað vel saman. Næst er kókoshveiti, spelt og lyftiduft blandað saman í skál og svo blandað varlega saman við eggja-banana blönduna.
Ef þið eigið ekki kókoshveiti er í lagi að nota ½ dl af grófuspelti eða 1 dl af fínu spelti eða venjulegu hveiti. Blandan er mjög þétt í sér sem gerir muffurnar þéttar, ef þið vilið ekki hafa þær þéttar þá er hægt að þynna deigið út með vatni eða mjólk.
Síðast er súkkulaðinu blandað saman við og blandan sett í muffinsform. Ég nota alltaf ísskeið þegar ég set í muffinsform því þá verða muffurnar passlega stórar, en annars eru formin fyllt u.þ.b. 2/3.

Keypti svons sniðuga í fyrra, hún er notabene aldrei notuð í ís, bara bakstur!


Þetta er svo bakað við 200°C en ég steingleymdi að athuga hversu lengi þær voru inni í ofninum, gott að fylgjast bara með því og stinga í þær prjón eða álíka til að sjá hvort þær eru til. Mínar voru allavega til þegar þær voru orðnar gullbrúnar.

Hrikalega góðar og fínt millimál með góðum kaffibolla fyrir þá sem drekka kaffi, mjólk eða öðru. Ég fæ mér eina svona og 1 skammt af próteini í seinna kaffi og finnst það æði!

Annars vaknaði ég um 6 í morgun, fór frammúr um 6,30 og var byrjuð að æfa ca 6,45. Æfing dagsins var HIIT(High intensity interval training).

Byrjaði á því að hita vel upp í 10 mín. Tók meðal annars burpees og líkamsþyngdar hnébeygjur eftir að hafa tekið hreyfiteygjur. Stillti svo gymbossinn á 25 mín æfingu, 20 sek on – 10 sek off og byrjaði að sippa. Eftir 25 mín af sippi tók ég svo 3 sett af 10 þungum upphífingum(útskýrði í seinasta bloggi) því að eitt af markmiðum ársins er að ná dauðum upphífingum. Teygði svo vel á eftir, allt í allt um klukkutíma æfing og ég búin að borða og byrjuð að læra um 8,15.

Nú ætla ég hinsvegar að halda áfram að læra um vöðva, beim, liði, vefi, og allskonar latnesk heiti. 

Ég vona að þið eigið ljúfan sunnudag, ég ætla allavega að reyna að eigann góðan hérna inn í æfingarherbeggi með bókum og glósum.

-KristínÞorvalds.


Engin ummæli:

Skrifa ummæli