Villtu gera eitthvað öðruvísi? Þá mæli ég með þessu;
Ég ákvað að prófa eitthvað nýtt í mai, fann hnébeygju(Myndband) áskorun og byrjaði á henni 1. mai, sá svo á facbook kviðæfingar(Myndband) áskorun og ákvað á gera hana líka, sé fram á auman maga og rass mánuð!
Við Halli erum annars byrjuð að lyfta þungt 2 í viku, á tvískiptu plani. Það þýðir að við æfum á mánudegi og föstudegi aðra vikuna og þriðjudegi og fimmtudegi hina. Svo tökum við CrossFit æfinga akkurat öfugt. Þannig að við æfum 4x í viku saman og svo er ég að byrja að hlaupa aftur svo ég er að æfa 6 - 7x, sem ég er að fíla í tætlur.
Annars voru 2 ár síðan við tókum við fyrstu íbúðinn okkar í Svíþjóð 7.febrúar síðastliðinn. Ekki seinna vænna að hengja upp jóladagatalið sem ég fékk fyrir jólin 2010. Búið að vera undir sjónvarpinu okkar síðan við fluttum inn hér 19. ágúst 2011, þar áður var þetta í kassa. Mér þykir rosalega vænt um allar þessar myndir, og finnst mjög kúl að hafa þær á veggnum fyrir ofan sófann minn!
Brjálæði seinustu vikur í skólanum, er með slatta mörg blogg í hausum um allt milli himins og jarðar. Vona að ég komi þeim niðurá "pappír" núna á næstunni.
-KristínÞorvalds.




Engin ummæli:
Skrifa ummæli