fimmtudagur, 19. apríl 2012
19. apríl 2012
Ég elska að hlaupa, ég fæ ekki nóg af því þessa dagana. Finnst fátt betra en að fara út að hlaupa í hvaða veðri sem er með ipodin í eyrunum, ein með sjálfum mér.
Ég er líka búin að taka þá ákvörðum að kaupa mér ekki annað ræktarkort í sumar. Halli er að taka kúrs í skólanum þar sem hann er að læra að verða styrktarþjálfari, svo að hann ætlar að gera flott æfingarprógramm fyrir sumarið sem inniheldur styrktaræfingar sem verða gerðar hérna heima og úti. Ég nenni bara ekki að hanga inn í ræktarsal í sumar. Fer út að hlaupa og tek góðar styrkaræfingar, ég held að ég verði í góðum málum. Hvað finnst þér?
-KristínÞorvalds.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)






Engin ummæli:
Skrifa ummæli