sunnudagur, 8. apríl 2012

8. apríl 2011

Best að kúra með mömmu og pabba!

Mamma og pabbi eru komin til okkar og verða hérna þar til á laugardaginn eftir viku. Ég er að fíla það í botn að hafa þau hjá okkur, yndislegt að hafa þau! Þau eru nefnilega svolítið best.
Við erum búin að baka helling, versla smá og hafa gaman, þetta er yndislegt og ég er eiginlega alveg á því að ég vilji ekkert að þau fari heim, þau meiga bara vera hérna alltaf. punktur.

Annars er lítið að frétta, ég er búin að vinna smá og æfa vel. Ég tók líka algjörlega til í mataræðinu mínu í vikunni og uppskar eins og ég sáði. Loksins loksins loksins fór viktin niður í gær! 
Nammidagur í dag og svo beint á hreint gott mataræði aftur, vona líka að ég fái kanski eina vakt í vikunni, svona til að halda mér við :)

-KristínÞorvalds.


Engin ummæli:

Skrifa ummæli