Þetta er eitt af uppáhalds þessa dagana.
Ég er ekki alveg búin að vera nógu dugleg undanfarið. Ætla ekki að afsaka eitt eða neitt, ég veit að ég er ekki búin að stada mig matarlega séð og er að taka á því.
Hinsvegar eru undanfarnir 10 dagar búnir að vera rosalega erfiðir, fékk hræðilegt símtal frá pabba í seinustu viku sem sagði mér að einn yndislegasti strákur sem ég hef þekkt hafi látist af slysförum í vinnunni sinni. Það var jarðað í dag, og ég hefði gefið mikið fyrir að vera heima og getað fylgt honum til grafar og kvatt hann í hinsta sinn, en ég fer og heimsæki hann þegar ég fer heim í fjörð næst. ♥
Annars er allt gott að frétta, er búin að vinna 4 daga í þessari viku og vann 3 í seinustu. Vann fyrstu kvöldvaktina mína ein í kvöld í heimahjúkruninni og díj hvað þetta er allt öðruvísi en heima. Hér gera starfsmenn heimahjúkrunar allt. Ég þríf og tek til, elda, verlsa, gef lyf, skipti á, já ég geri allt! En þetta er yndislegt, ég er samt ekki frá því að sakna aðeins heimahjúkrunar í Reykjavík, en ég hef trú á að þetta verðir hið flottasta sumar, nóg að gera, kynnast nýju fólki og hafa gaman - jah ég hef ekki trú á öðru!
Vildi bara svona aðeins láta heima í mér - hausinn minn er ekki alveg búin að vera skrúfaður á rétt undanfarið, hann hefur meira og minn verið einhverstaðar allt annarstaðar en hann á að vera.
-KristínÞorvalds.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli