Ég er á fullu að skipurleggja mig fyrir komandi vikur, nú skal sko spýtt í lófana og tekið þetta með trompi. Örfáum kílóum léttari og betri styrkur coming up!
Djöfull sem ég sakna CrossFit þessa dagana samt, ætla að skipurleggja æfingarprógrammið þannig að ég geti tekið eina og eina þannig æfingu inn á milli.
Er byrjuð á fullu að hlaupa aftur, sem ég er að elska út af lífinu. Keypti mér nýja hlaupaskó í afmælisgjöf frá ömmu og afa á Sigló, sem eru æði! Takk þið :*
Hlustaði á hlaupa/hjóla playlistann minn frá því seinasta sumar á leiðinni í vinnuna í dag, og ég er ekki frá því að ég sakna Kalmar pínu, pæling að kíkja þangað eins og eina helgi í sumar? Kanski :)
Ég læt ykkur vita hvernig gengur, byrjaði þetta blogg upphaflega til að fólk heima gæti fylgst með okkur hérna úti, en líka til að halda utan um mig í heilbrigðum lífstíl, pant ekki 74,4 kg aftur takk.
Þannig að núna fara að detta inn reglulegri blogg, um lífið og tilveruna. En æfingar, mataræði og árangur einnig.
Ég vona að ykkur þykir það skemmtileg lesning!
-KristínÞorvalds.

lýst vel á þetta hjá þér ;)
SvaraEyða