Svona líka hress 5 daginn í röð heima veik! :(
Ef ég verð ekkert skárri á morgun er ég virkilega að spá í því að kíkja til doksa og ath hvort ég geti ekki fengið eitthvað við þessu. Þótt það sé litlar líkur á því, þar sem ég held að þetta sé bara væg flensa, ég er allavega ekki að drepast úr hita eða beinverkjum.
Það ömulegasta við þetta allt saman er að ég hef ekki getað æft neitt síðan á fimmtudaginn! Sem er heil VIKA! Sem er ekki að gera sig, ég er bara fegin að vinnan hefur ekki boðið mér vakt. Lítur út fyrir að vera fyrsta vikan síðan ég byrjaði sem ég vinna ekki neitt, sem er frekar skrítið. Vinnan hringi reyndar í dag til að ath hvort ég þyftir eitthvað sérstakt frí í sumar, en þar sem ég hef engin plön, enginn búin að staðfesta heimsókn í sumar(nema tengdó en það er ekki alveg 100% hvenær það verður) þá sagðist ég geta unnið í allt sumar eins og brjálæðingur! :)
Ég vona allavega að ég verði skárri á morgun, nenni ekki einhverju læknaveseni...
-KristínÞorvalds.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli