Ein sæt frá seinasta sumri.
Ég sit í sófanum heima hjá mér og horfi á nánast tómt word-skjal, sama word-skjal er ég búin að horfa á seinustu 3 daga og kem mér ekki í það að skrifa. Er búin að eyða deginum að lesa til og frá um hreyfingu, hversvegna hún er mikilvæg och så vidare, er búin að lesa alþjóðleg og innlend skjöl um hreyfingu, hvernig er best að framkvæma hana og hversu mikið á að gera til að fá ákveðna niðurstöðu, ég er líka búin að lesa allskyns rannsóknir. Nú ætti ég að vera komin með nóg af þekkingu í hausinn á mér til að skrifa þetta blessaða verkefni. En einhverra hluta vegna koma orðin ekki fram. Vona það besta og að þetta fari að ganga. Skil fyrir 9 á þriðjudagsmorgun!
-KristínÞorvalds.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli