föstudagur, 24. maí 2013

24. mai 2013

Stoltust eftir fyrsta 5 km hlaup sumarsins!

Fyrsta fríhelgi í 4 vikur að ganga í garð, enginn vinna og enginn lærdómur, hversu sweet? Planið er að koma mataræðinu í rétt horf, æfa og slappa af. Ég ákvað nefnilega að taka 4 slappi af vikur og nú eru þær á enda, á morgun! Þessar fjórar vikur eru búnar að innihalda miklu meiri óhollan mat og minni hreyfingu. Eitthvað sem mér fannst ég þufa á að halda til að funka almennilega, svona eftir 2 og 1/2 ár af því að borða undir daglegum  ráðleggingum af kaloríum. Hef heldur ekki stigið á vigt í 4 vikur, sem hefur ekki gerst síðan ég ákvað að taka mig í gegn. En á morgun byrja ég aftur, þá verð ég líka duglegri að blogga þar sem skólinn fer alveg að verða búinn, ég byrja að æfa meira og tek harðar á mataræðinu. Þanning að: Fylgist með! :)

-KristínÞorvalds.



Engin ummæli:

Skrifa ummæli