Við sváfum yfir okkur í morgun, og það ekkert lítið. Stilltum klukkuna á rúmlega 5 en Halli vekur mig um korter í 7! Hvorugt okkar man eftir þvi að hafa slökt á vekjaraklukkunum, en það þýddi lítið annað en að koma sér framúr, henda mat í sig og taka æfingu áður en lærdómurinn endalausi byrjaði. Æfing dagsins var í þyngri kantinum og ekki beint CrossFit leg, en hrikalega skemmtileg samt sem áður!
3x3 súpersett (ca 2 mín hvíld á milli setta)
8 - 10 endurtekningar
Róður& Hallandi bekkpressa með handlóðum (æfingar Hér og Hér)
Þungar upphifingar & Armbeygjur (æfingar Hér og Hér)
Dýfur & Curl med handlóðum (æfingar Hér og Hér)
Var beðin um betri útskýringar á æfingunum svo hér kemur það.
Súpersett er þegar maður tekur 2 æfingar og tekur seinni æfinguna strax á eftir þeirri fyrri. Í þessari æfingu þýðir það að við tókum 8 - 10 endurtekningar af Róðri og fórum svo strax í 8 - 10 endurtekningar af halladi bekk án þess að hvíla á milli, það tekið 3x með ca 2 mín hvíld á milli setta. Eins með upphífingarnar&Armbeyjurnar og Dýfurnar&Curlið.
Ég er ekki alveg komin á það stig að gera tekið upphífingu sjálf, þannig að þung upphífing fyrir mig er að hoppa(samt að draga mig upp mest alla leið) og halda svo á móti á leiðinni niður.
Verð að segja að þetta var bara hrikalega skemmtileg æfing, líka alltaf gaman þegar maður er að taka þyngdir sem maður hefur aldrei tekið áður, en ég tók met þyngd í róðrinum í morgun og hoppaði af gleði!
Nú verð ég samt að halda áfram að læra, hendi inn uppskriftum að hrikalega góðum muffum sem ég gerði í dag og eru í hollari kantinum á morgun.
Búin að koma mér vel fyrir inn í æfingarherbergi svo að Halli geti ekki truflað mig!
- KristínÞorvalds.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli