Það er brjálað að gera í skólanum þessa dagana, fer í fyrsta prófið í humanbiologin núna næsta mánudag, þá úr anatomiu hlutanum og veit ekki alveg hvernig það á eftir að ganga. En ég hef 4 daga til að sitja og læra svo þetta gengur vonandi upp! :)
Annars ákvað ég í morgun að byrja að henda hérna inn „æfingu dagsins“ þá daga sem ég æfi og skrifa kanski aðeins um það hvað ég er að borða, svo að þið sem lesið getið þá fylgst með hvernig mér gengur. Þá held ég líka betur utan um sjálfan mig.
Seinustu tvær vikur eru allavega búnar að gangan rosalega vel, er með svo mikla strengi(harðsperrur fyrir ykkur sunnlendingana) í kálfunum í dag eftir HIIT sippæfingu gærdagsins að ég labba eins og ég veit ekki hvað í dag. En ég ákvað það í gær eftir crossfit core æfingu með Halla að taka pínu brennslu þar sem ég vaknaði ekki nógu snemma til að fara út að hlaupa um morguninn. Tók 20 mín sipp æfingu, 20 sek on - 10 sek off og það tók hrikalega vel á og var bara skemmtilegt, er að fatta það betur og betur hvað það er gaman að sippa.
Æfing dagsins í dag var tvíþætt, eða tvö WOD:
WOD 1
3 rounds of:
6x Hnébeygja 40% af one rep max
6x Sumo deadlift high pull með ketilbjöllu, nota spreingikraft.
6x Hnébeygjuhopp, nota spreyngikraft
2 mín í kvíld á milli umferða.
WOD 2
3 rounds of:
6x Puss Press
6x Armbeygjur með klappi
6x Upphífingar, halda vel á móti á leið niður.
Tók góða upphitun áður og svo pínu snatch tækni eftir á ásamt því að teygja vel og lengi.
En við Halli tökum CrossFit æfingar saman 4x í viku. Sprengikraftur á mánudögum, Core á þriðjudögum, líkamsþyngd á miðvikudögum og þungt á föstudögum, en svo getur það allt blandast saman inn á milli eftir hentuleika. Við tókum t.d ekki æfingu á mánudaginn vegna tímaleysis og því tókum við spreingikraftsæfinguna í dag ;)
Ræs eldsnemma í fyrramáli til að ná útihlaupi áður en lærdómsmaraþon byrjar. Þar til næst!
-KristínÞorvalds.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli