þriðjudagur, 8. janúar 2013

Annáll 2012!


Ég ákvað að skrifa pínu Annál fyrir árið 2012. Örugglega eitthvað sem ég er að gleyma, en það verður að hafa það. Ég vona svo að nýja árið fari vel í ykkur og ef þið hafið strengt áramótaheit á eitthvern hátt að ykkur takist að uppfylla það. 

Janúar:

Árið byrjaði í Reykjavíkinni hjá tengdafjölskyldunni sem var æði.
Við fórum aftur út til Svíþjóðar hriklalega snemma að morgni 7. Jan og Halli byrjaði aftur í skólanum daginn eftir.
Ég var atvinnulaus og fílaði það ekki

Febrúar:

Ég byrjaði að mæta til Jobbcoach alla virka daga kl 9 til að reyna að fynna nýjar leiðir til að fá vinnu.
Komst að því að Gävleborgslän er með hæsta atvinnuleysi í landinu – Score!
Fór í fyrsta atvinnuviðtalið á árinu og fékk vinnu á staðnum!


Mars:

Byrjaði að vinna í afleysinugum í heimahjúkrun í Gävle.
Átti afmæli, deginum var eytt í Falun í búðum og út að borða sem var hrikalega gaman.
Einn erfiðasti dagur ársins var 21. Mars. Pabbi hringdi í mig og sagði mér að einn yndislegasti strákur sem ég þekkti hafi dáið í vinnuslysi langt fyrir aldur fram.

Apríl:

Mamma og pabbi komu í byrjun mánaðar og eyddu 10 dögum hjá okkur. Það var yndislegt að eyða páskunum með þeim.
Ég vann meira í afleysingum og fékk að vita að ég fengi 100% vinnu um sumarið.
Halli varð 23. ára.


Mai:

Það var rosalega heitt úti í byrjun mánaðar, við fórum á ströndina og lágum í sólbaði á svölunum okkar.
Seinnipart mánaðar breyttist veðrið svo skildilega og restin af sumrinu ringdi nánast daglega og það var skýjað. Hitinn ágætur en hrikalega blautt úti.


Júní:

Kiddi og Jóa koma í heimsókn til okkar, sem var yndislegt!
Ég byrja að vinna í sumarvinnunni minni.
Hætti að æfa í ræktinnni og fókuseraði á hlaup og líkamsþyngadaræfingar.
Ennþá rignir stanslaust.

Júlí:

Ég komst inn í skóla
Ég vinn, æfi og sef.
Hörður og Elísabet komu í heimsókn – Hörður í 3 daga en Elísabet var hérna í ½ mánuð.
Þorsteinn, Hildur, Alexander og Fanndís koma í heimsókn og eru í nokkra daga, Elísabet fer svo með þeim til noregs aftur.


Ágúst:

Kristín Ásta, Haffi og Natalía koma í heimsókn til okkar og við förum svo með þeim heim í heimsókn til Íslands.
Skólinn byrjar og mér líst hrikalega vel á fyrsta kúrsinn.


September:

Ég læri eins og brjálæðingur, reyni að skilja sænskuna betur og lesa á ensku en hugsa á sænsku. Hausinn var mjög þreyttur þann mánuðinn.
Ég tek fyrsta háksólaprófið mitt og það á sænsku!

Október:

Skólinn heldur áfram og ég man voða lítið annað.

Nóvember:

Halloween/Tacksittnings djamm 2. Nóvember
Skemmtiferðaskipssigling til Álands 3. – 4. Nóvember.
Skóli – lærdómur – vinna og æfingar.
Byrja í seinni áfanga annarinna - lýst ekki alveg jafn vel á hann, en spennandi þó!

Desember:

Við byrjuðum að hugsa um það hvernig við vildum hafa okkar jól bara tvö ein.
Skóli hélt áfram.
Jólafrí 19. Des
Vinna byrjaði 20. Des.
Fengum sent fullt af mat, nammi, jólaskrauti & jólagjöfum frá íslandinu góða.
Fyrstu jólin okkar Halla bara tvö, sem var skrítið en skemmtilegt.
Árið endaði svo heima hjá okkur í Sandviken, þar sem við komumst að því að Svíar sprengja rosa lítið upp.

-KristínÞorvalds.


Engin ummæli:

Skrifa ummæli