... Ég er sem sagt nr 10 á biðlista inn í skóla eftir áramót. Kemur allt í ljós seinna í mánuðinum hvort ég kemst inn eða ekki - ég er samt meira á því að komast ekki inn þar sem 25% þurfa að hætta við til að ég komist inn, en þið meigið samt krossa fingur fyrir mig. Hinsvegar ef ég kemst ekki inn þá eru önnur plön á borðinu, fleiri en ein þannig að það kemur bara í ljós hvað ég fer að gera.
Ég fór til Stokkhólms og tók tvö próf á fimmtudaginn, eftir þau skrapp ég aðeins í búðir og keypti meðal annars áramótakjól handa sjálfum mér - svona þar sem flestir kjólarnir mínir eru orðnir of víðir.
Hann kostaði aðeins 99kr sænskar(1752 ísk) en hann er svo töff og ég er svo ánægð með hann!
Annars þá birti ég mynd um daginn af sjeik sem ég gerði mér í hádeginu. Hann er hrikalega góður og hollur og þið getið fundið uppskrift hérna, hann er undir nafninu happy goji shake. Ég hinsvegar prófaði að henda smá af frosnum bláberjum og það var líka mjög gott!
-KristínÞorvaldsd.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli