fimmtudagur, 26. janúar 2012

Nýtt ár :)

Jæja, ég kann enn að blogga, ákvað að taka mér bara smá pásu meðan ég var á Íslandi og er enn að koma mér í gírinn til að byrja.

Þann 27. des voru mamma og pabbi með matarboð, þar mætti bæði stykkin af ömmum og öfum ásamt okkur Halla og Guðrúnu, Hólmari og Hönnu Valdísi. Ég ákvað að gera sænskar muffur fyrir fólkið í eftir mat, rosalega góðar!



Pekan hnetur og heimagert sýróp sett neðst og svo bollaköku deig með kanill og negull og bakað. Jólalegar!

Í vikunni fengum við líka sent nýju matvinnsluvélina okkar, sem er æði ef ekki meira er sagt! I'm in love!


-KristínÞorvalds.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli