Ég brosi hringinn!
Já, með lit á augabrúnunum og fjólublátt naglalakk!
Ástæða?
Jú, ég fékk símhringingu seinnipart mánudags og var boðuð í atvinnuviðtal hjá Omvårdnad Gävle. Ég fór og þeim leist nú svona aldreilis vel á mig, að ég fékk ekki bara vinnu í sumar, heldur í afleysingum framm á sumar! Já í dag brosi ég hringinn!
Nú er bara að bíða eftir símhringingunni góðu sem segir að ég eigi að mæta í vinnu, úff hvað ég er fegin! :)
Ég henti svo kesella(eins og óhrært íslenskt skyr, 13g af próteini, 3,5g af kolvetnum og 1g af fitu í 100g), rúsínum, einni lúku af niðurskornum möndlum, kókos, speltmjöl(eins útlítandi og haframjög bara úr spelti ;) og pínu agave sýróp til að fá pínu sætu á þetta og vafði upp og borðaði. Þetta er æði, algjört nammi og bara ekkert óhollt!
Annars er voða lítið að frétta, er búin að vera í hóp hjá jobbcoch núna í mánuð. Þá eru tvær konur að hjálpa ungdom(fólk á aldrinum 18 - 25 ára) sem eru búin að vera atvinnulaus í 1/2 ár að finna vinnu.
Ég þarf svo að tala við þær á morgun hvernig framhaldið verður því að ég er náttúrulega komin með vinnu, þótt að það sé bara í afleysingum.
Stefnan var líka sett á Noreg á sunnudaginn næsta á jobbmässu(Fullt af fyrirtækjum á sama stað að auglýsa vinnur hjá sér) en þar sem ég er komin með vinnu í sumar þá ákvað ég það í gær að vera bara heima um helgina og slappa af í stað þess að sitja í 9 klst í rútu á sunnudag og þriðjudag.
Annars held ég að það sé ekkert meira, ég er að reyna að vera duglegri að blogga, svona svo að fólk heima geti fylgst með.
-KristínÞorvalds.


Til hamingju með vinnuna Kristin!! :)
SvaraEyðatil hamingju með vinnuna ! :) -hallahelga
SvaraEyðaTil hamingju með vinnuna Kristín mín. Knús frá okkur afa þínum.)
SvaraEyða