föstudagur, 15. júní 2012

15. júni 2012

Ein gömul og góð, með stútinn!

Vinnusumarið byrjar vel, fimm daga vinnuvika sem var unninn á fimm vinnustöðum! Ég er ekki frá því að mér finnist þetta pínu gaman, og stressandi í leiðinni. En þeir sem þekkja mig vita að ég er stressaða típan, ég geri oftast úlfalda úr mýflugu, ótrúlegt en satt þá var vikan ekki þannig! Ég hef góða tilfinningu fyrir sumrinu, en það gæti allt eins breyst á morgun. haha.

Gleði vikurnar er samt klárlega sú staðreynd að við séum að fara til Íslands í ágúst. Kristín Ásta, Haffi og Natalía koma til okkar 8. ágúst og svo fljúgum við heim með þeim að kvöldi 16. ágúst. Ætlum svo að eyða rúmri viku í faðmi vina og fjölskyldu og fljúga heim aðfaranótt sunnudagsins 27. ágúst.
Ég get ekki beðið, við erum nú þegar byrjuð að plana hvað við ætlum að gera, Greifinn, Brynja, Vesturbæjarís, bæjarins bestu. Já við ætlum að njóta þess að borða. haha! En mest hlakkar okkur til að hitta allt fólkið, sem við söknum svo mikið!

Stefnan er svo sett á morgun inn í Gävle, skoða háskólann, skoða bæinn, skoða búðir, fara út að borða og í bíó. Líst vel á það! Ætla að njóta næstu þriggja daga, frí! :)

-KristínÞorvalds.

1 ummæli:

  1. Dásamleg mynd! Halli er eins og fermingarbarn:)
    Hafið það gott og njótið sumarsins. Hlökkum til að hitta ykkur í ágúst.

    SvaraEyða