sunnudagur, 24. júní 2012

24. júni 2012

Tæpar þrjár vikur í að ég viti hvort ég komist inn í skóla í haust, er ekki frá því að spennan/stressið sé aðeins farið að segja til sín. En ég vona það besta, ef ég kemst ekki inn núna þá kanski næst.

Læt mig dreyma um Ölands djur och nöjepark þessa dagana!

En við stefnum samt í Furuvik í ágúst þegar Kristín, Haffi og Natalía koma, en Furuvík er mjög líkt Ölands djur och nöjepark. Fyrir utan það að tívolíið þar er stærra og sundlaugargarðurinn ekki jafn stór. En ég held samt að þetta verði gaman.

Fór út að hlaupa í morgun í fyrsta skipti í 2 vikur, og mikið rosalega var það gott. Halli kom með mér og við fórum bara lítinn hring. Góð brensla og stefnan er að ná 3 hlaupum í viðbót í vikunni og lengja þau með hverjum deginum til að ná upp þolinu aftur. Svo ætla ég að taka tvær styrkaræfingar með Halla og eina tabata æfingu sjálf. Það plús gott mataræði ætti að gera topp viku bæði andlega og líkamlega, ég held það bara! :)

Vildi bara láta heyra aðeins í mér. Vona að vikan  ykkar verði frábær, ég ætla að láta mína vera það!

-KristínÞorvalds.


Engin ummæli:

Skrifa ummæli