Eini galli vikunar er kanski það að ég er hálf fötluð í dag vegna verkja í hægri læri, er með stærsta skordýrabit sem ég hef á æfinni séð! Ég sat úti með einum kúnanum í heimahjúkrun í gær þegar ég sé að moskító fluga er að bíta mig í lærið, hélt fyrst að það væri ekki hægt þar sem að vinnu buxurnar eru út semi gallabuxna efni og eru þokkalega þykkar, en allt geta þessar blessaðar flugur ef þær ætla sér það greinilega. Ég allavega kramdi fluguna og hélt að þetta yrði ekkert mál. Svo þegar ég er búin að vinna og að klæða mig út vinnufötunum sé ég að það er bit á lærinu og vonaði að þetta yrði ekkert mikið þar sem þetta leit bara út eins og bóla.
Svo sé ég í gærkvöldi að þetta var farið að stækka og svo hlít ég að hafa klórað í þetta hrikalega í svefni því ég vaknaði svona 10 - 15 sinnum í nótt til að kæla, bæði vegna kláða og líka vegna verkja vegna þess að ég er hrikalega bólgin!
Það hlítur að vera svona gott í mér blóðið!
Mér líður eins og versta aumingja að vera að væla yfir þessu, en stundum þarf bara að hringja á vælubílinn! En þetta er bara svona og ég bít bara á jaxlinn og bölva(reyndar ekki í hljóði).
Annars þá komst ég inn í skóla í haust og brosi þrjá hringi eins og pabbi minn orðaði það! Er að fara læra Heilsufræði sem endar með bachelor. Ég hef fengið nokkrar spurningar um hvað heilsufræði er. Svarið sem ég gef fólki er að ég er að læra að kenna fólki að lifa heilbrigðan lífstil. Eftir fyrst árið velur maður svo hvort maður leggi áheyrslu á næringu eða sálfræðina. Ég fer í heilsufræði með áheyrslu á næringu. Lýst hrikalega vel á þetta og get ekki beðið eftir því að verða skóla stelpa aftur.
-KristínÞorvalds.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli