Elsku Sunnudagar!
Klukkan er bara rétt rúmlega 9 en í morgun er ég búin að raka hárið af Halla, borða hollan og góðan morgunmat, gera grænt te fyrir daginn, taka hrikalega góða Crossfit æfingu, teygja vel, sturta mig og fá mér aftur að boðra. Já það er stundum gott að vera orðin vanur því að vakna kl 5 í vinnu, því að þegar ég vaknaði klukkan 6,45 í morgun leið mér eins og ég hefði sofið út. Svo er vinna frá 12 - 21 og svo FRÍ á morgun og stefnan er að nota daginn í eitthvað skemmtilegt, kanski að fara og skoða Hofors svona fyrst að við höfum aldrei gert það.
Svo eru bara 3 dagar í að Kristín Ásta, Haffi og Natalía komi til okkar og verða hjá okkur þar til að við förum heim 16. ágúst. Díj hvað ég hlakka til!
Annars er ekkert búið að vera fátt um gesti, Hörður og Elísabet komu til okkar 17. júli og var Hörður hérna hjá okkur í 3 daga en Elísabet var eftir og fór ekki aftur til Noregs fyrr en 28. júli, en hún fór til baka með Þorsteini, Hildi, Alexander og Fanndísi sem komu hingað til okkar 24. Það var rosa gaman að fá þau öll, þá vorum við Halli bæði glöð að Þorsteinn skyldi koma því hann verður á sjó þegar við förum heim og þar af leiðandi sjáum við hann bara ekki neitt þá.
Annars er allt gott að frétta af þessum bænum, 8 vinnudagar eftir, 2 frídagar! Þannig að eftir 10 daga, með deginum í dag er ég búin í sumarvinnunni. 2 dagar verða svo nýttir í það að slappa af, versla og njóta þess að hafa gesti hjá okkur áður en við förum heim. Ég hlakka svo til að hitta og knúsa alla!
-Kristín Þorvalds.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli