Þessi jakki er draumurinn þessa dagana. Verst að ég tími ekki 900 SEK í hann.
×××
Það er pínu síðan ég kíkti hér inn seinast, ég sem er alltaf að reyna að verða betri og betri að uppfæra. Því mér sjálfri finnst gaman að blogga, og geri það mest bara fyrir mig. En einhverja hluta vegna þá dettur það út úr hausnum stundum.
Núna ligg ég alein í sófanum og horfi á Sex and the city á meðan Halli sefur því hann er að fara að vinna í nótt. Kósýkvöld sem ég plana að nýta til fulls ein með sjálfum mér. Plan helgarinnar er svo tiltekt og þvottadagur annaðkvöld. Spennandi líf það, laugardagskvöldi eytt í þvottahúsinu. Ég veit samt að þetta verður fín helgi, gera íbúðina pínu kósý fyrir veturinn. Þarf allavega að koma fyrir fleiri kertum, það er ekki nema 17,8°C inní íbúðinni núna en samt ekki kaldara en rétt við frostmark úti. Kvíði pínu kuldanum í vetur eftir hrikalega hlítt og sólríkt sumar. Ég er ekki frá því að ég eigi eftir að sakna þessarar gulu á himnum!
-KristínÞorvalds.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli