Annars líst okkur bara vel á þetta allt saman held ég, Halli að byrja í skólanum á morgun og ég stekk út í djúpulaugina og byrja að leita mér að vinnu. Svo ég ætla að biðja ykkur að krossa putta fyrir mig. Einnig ætla ég að fara í ræktarleiðangur á morgun og á þriðjudaginn, en ég er búin að fynna tvær líkamsræktar stöðvar hérna sem mér líst ágætlega á og ætla að prófa aðra þeirra á morgun og hina á þriðjudaginn og vona að önnur þeirra virki fyrir mig. Annars er það bara harkan sex og tekið heimaæfingar, sem er líka ágætt fyrir utan það að hurðakarmarnir hérna leifa ekki iron gyminu að virka sem er frekar fúllt því það þýðir engar uppifingar inni...
En að öðru..
Langaði rosalega mikið í bananbrauð um daginn og ákvað að skella í eitt í hollari kantinum, ekki hollt en allavega hollara en ef maður notar hveiti og sykur.
Spelt bananabrauð:
1 egg og 1 og 1/2 dl agave hrært saman.
2 - 3 vel stappaði bananar bætt úti með sleif.(ég notaði 2 stóra annars hefði ég notað 3
5dl spelt + 1/2 tsk matarsódi hrært varlega úti.
Sett í form og látið bakast í 45 mín við 200°C.
2 - 3 vel stappaði bananar bætt úti með sleif.(ég notaði 2 stóra annars hefði ég notað 3
5dl spelt + 1/2 tsk matarsódi hrært varlega úti.
Sett í form og látið bakast í 45 mín við 200°C.
Hættulega gott, en allt er gott í hófi ;)
- Kristin Þorvalds.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli