Ég viðurkenni það fúslega að mér fannst deadið eitt það leiðinlegasta sem ég gerði á æfingu, og mín ástæða var sú sama og flestra annara, mér fannst þetta drullu erfitt! En eftir að ég byrjaði í CrossFit í Kalmar, þar sem mér var kennt að gera æfinguna rétt, þá er þetta eitt það skemmtilegasta sem ég geri á æfingu, ég er t.d. að fara að taka deadlift á æfingu í dag og díj hvað ég hlakkar til!
Ég held nefnilega að það sé málið, fólk gerir æfinguna vitlaust og þá aðsjálfsögðu verður hún mun efiðari, en um leið og maður lærir að gera hana rétt, þá verður hún auðveldari og þar af leiðandi skemmtilegri.
Svo getur það líka bara verið að fólki finnist æfingin leiðinleg.
Mér hefur hinsvegar alltaf síðan að ég byrjaði eitthvað að fikta við það að lifa fundist gaman að taka hnébeygju, og í dag er þetta æfingin sem mér finnst skemmtilegast að gera, ef ég vissi ekki betur, myndi ég gera hana á hverri æfingu!
En hana, alveg eins og réttstöðulftan, þarf af gera rétt. Sem ég hef reyndar alltaf gert. En fólk er hinsvegar ekki alltaf að gera hana rétt. Það læsir hnjánum, beygir bakið og spennir ekki magann.
Hér að neðan eru kennslumyndbönd um hvernig á að gera þessar æfingar rétt. Því að ef að þú gerir þær ekki rétt færðu ekkert útur þeim og þú getur einnig skemmt eitthvað.
Þetta eru allavegana mínar tvær uppáhalds æfingar, hverjar eru þínar?
-KristínÞorvalds.
já sæll dugnaður! maður ætti kannski að taka þig til fyrirmyndar, þar sem ég geri voða lítið þessa dagana annað en að sitja :) en gangi þer vel með framhaldið ;*
SvaraEyða