föstudagur, 21. september 2012

Pönnukaka :)

Mig langaði rosalega í eitthvað í dag, og ákvað því að prófa að gera eitthvað skemmtilegt í eldhúsinu. Langaði í pönnuköku en nennti að kveikja á tölvunni þannig að ég mixaði eitthvað saman í skál og vá hvað þetta kom vel út!






Þetta er rosalega einfallt. 

1 egg
1 eggjahvíta
3 - 4 msk gróft spelt
1 tsk lyftiduft
kanill af vild
pínu vanilludropar
1 tsk kaldpressuð kókosolis(setti hana á pönnuna og hellti 
henni svo í skálinn og notaði svo afganginn til að steikja upp úr)
mjólk til þynningar ef vantar!

Eins og sést á myndunum setti Halli gróft hnetusmjög og 70% súkkulaði en ég setti 70% súkkulaði og banana en gleymdi að taka mynd. Þetta var hrikalega gott!

-KristínÞorvalds.


Engin ummæli:

Skrifa ummæli