sunnudagur, 2. september 2012

Skyr!

Er eins og er að prófa að búa til skyr, úr skyri sem við komum með heim frá Íslandi. Læt ykkur vita hvernig gengur :)


Skyr "uppskrift"

Þú þarft að verða þér út um skyrgerla (hreint skyr) og undanrennu.

Hitar undanrennuna í 100°C (án þess þó að láta hana sjóða) og leyfir henni að kólna aftur í 37°C. Tekur þá hreint skyr um 3 msk fyrir hverja 10L af undanrennu og hrærir út, þannig að þú setur skyrið í skál og bætir smán saman flóuðu undanrennunni út í þar til þú ert með einsleitan vökva.

Skálinni með þessum vökva lokar þú og geymir í ca 3 – 4 tíma við stofuhita, eða þangað til vökvinn hleypir(í köggul og þunnan vökva.

Gott er þá að setja skálina í kæli til næsta dags. Þá er vökvinn síaður frá skyrinu sem er þá þykkur kögggul í grisjunni. Hrærir kögulinn úr með mjólk og sykri og ert komin með venjulegt skyr.

Verði þér að góður J


Engin ummæli:

Skrifa ummæli