laugardagur, 8. september 2012

Skyrið mistókst - Eða mistókst og mistóks. Fyrstu tvö skiptin þá mistókst þetta algjörlega. Þannig að ég hringdi í mömmmu (því mömmur eru bestar og vita allt, allt I tell you!) og hún hjálpaði mér að finna aðra uppskift sem þurfti ostahleypi, svo ég fór og keypti ostahleypi og prófaði í þriðja skiptið. Þá tókst þetta loksins, loksins eða hvað?
Við skulum bara segja að þetta hafi ekki verið þess virði, hvorugu okkar fannst þetta gott, eiginlega bara hálf skrítið. Svo við ákváðum að þetta væri eiginlega of mikið vesen, kostaði of mikinn pening, miðað við það að við gætum fengið 250g kesellu á sama verð og undanreunnuna sem fer í þetta. Þannig að hér eftir ætlum við bara að vera ánægð með okkar Kesellu, hún er líka próteinríkari en skyrið - samt ekki jafn góð!

Keypti mér þess í dag - finnst hún svo ótrúlega töff! :)

Annars er skólinn byrjaður og þetta lítur allt vel út. Þægilega kerfi líka á þessu hérna í Svíaríki, en allir háskólar, eftir því sem ég best veit, kenna í lotum. Þannig að maður er að einbeita sér bara að einum áfanga í einu. 5 vikur fyrir 7,5 hp kúrsa og 10 vikur fyrir 15 hp kúrsa. Ókosturinn er kanski að maður er lengur í skólnaum, t.d er ég í 15 eininga kúrs frá 4 nóvember til 20 janúar(11 vikur því að það eru jól þarna inn á milli) og ég er ekki búinn fyrr en ca 9 júni á næsta ári. 
En fyrir einstakling eins og mig, sem les alls ekki hratt og þarf að leggja aðeins á sig til að læra þá er þetta þægilega, líka því ég er að læra á sænsku í fyrsta skipti - því öll kennsla fer fram á sænsku og aðeins ein bók á ensku. Sem ég er eiginlega bara fegin með, því mér finns miklu erfiðara að lesa ensku og glósa á sænsku (því öll próf og verkefni er skrifuð á sænsku) því þá þarf ég að þýða enskuna yfir á íslensku og svo yfir á sænsku.


Annars erum við Halli að koma okkur aftur á réttan stað varðandi mataræði og æfingar, þetta sumar fór í smá rugl eiginlega. Ég tók 3 daga "detox" þegar við komum heim frá íslandi, borðaði bara boozt sem innihélt ávexti, grænmeti og vatn, svo gærnmetis og ávexta sallöt og ávexti í millimál. Ótrúlega skrífið að prófa svona, en ég gæti alveg hugsað mér að taka svona aftur og prófa þá 5 daga. Gekk ótrúlega vel svona miðað við vælið í mér fyrsta daginn.
Planið er svo að pannta sér lóð, því að ef við ætlum að kaupa okkur kort í rækt bæði þá borgar það sig eiginlega bara að kaupa lóð hér. en við erum búin að reikna það út að við borgum þetta upp á ca 10 mánuðum. Þá spörum við líka tíma því við þurfum ekki að búa til tíma til að æfa saman. Við erum hinsvegar ekki búin að kaupa þetta, læt ykkur vita hvernig það gengur.

Nú ætla ég hinsvegar að fara að borða hrikalega vel lyktandi beikonvafin kjúlla í mexikó sósu. Nammi!

-KristínÞorvalds.


Engin ummæli:

Skrifa ummæli