miðvikudagur, 12. september 2012

12. september 2012

Lífið er að komast í rétt horf aftur eftir frekar óskipurlagt sumar og frekar kreisí skólastart. Mataræðið er allt að koma til aftur og við Halli erum bæði byrjuð að vakna um 5,30 - 5,45 til að taka morgunæfingu fyrir skóla.

Lýst bara hevý vel á þetta allt saman, skólinn er pínu strembinn en ég hef ekki trú á öðru en að þetta komi með tímanum. Er nátturulega að læra á sænski plús það að vera í háksólanámi í fyrsta skipti. Tvær vikur búnar í dag og þetta verður auðveldara og auðveldara.

Ég þarf bara að vera duglegri að þora, þora að tala fyrir framan bekkinn og segja mína skoðun þrátt fyrir að ég segi það pínu vitlaust. Ég er nú ekki sú opnasta í byrjun, má eiginlega segja að ég sé svolítið hlédræg. Ég tala mikið, það veit ég, en hinsvegar bara við þá sem ég þekki. Þegar ég er kominn í hóp af fólki sem ég þekki ekki neitt þá hverf ég svolítið inn í mig hvað þá þegar það er á sænsku, tungumál sem ég kann, en ekki alveg 100% þannig að ég er alltaf með það á tilfinningunni að fólk eigi eftir að dæma mig fyrir að tala vitlaust, eins fáránlegt og það hljómar.Þannig að þetta er eitthvað sem ég verð að vinna að, að þora að tala fyrir framan bekkinn minn, að þora að taka þátt í samræðunum og að þora að segja mína skoðun.

Annars er ég búin að setjast niður og skrifa niður mín markmið. Bæði stutt- og langtíma markmið. Skólatengd, mararæðistengd og æfingatengd.
Ég hef það á tilfinningunni að þetta verði bara hrikalega skemmtilegt haust! :)

-KristínÞorvalds.



Engin ummæli:

Skrifa ummæli