Mér finnst það samt fínt, að fá aukapening og svo finnst mér alls ekki leiðinlegt í vinnunni minni. Það verður bara pínu erfitt að vakna klukkan 5 á morgun, en það reddast!
Hinsvegar er það sem breytist ekki er að ég og Halli ætlum að gera eitthvað skemmtilegt á laugardagskvöldið, hvort sem það er að fara að borða kínverskan mat og fara í bíó í Gävle eða vera heima og elda eitthvað gott, það kemur betur í ljós í kvöld.
Við erum bara búin að sjá svo ótrúlega lítið af hvort öðru, en samt meira en ef við hefðum ákveðið að búa í sundur eins og við vorum búin að tala um.
Það er byrjað að hausta í Svíaríki, mér finnst haustið alltaf svo fallegt en díj hvað ég fíla ekki það að það byrji að kólna. Sérstaklega það sem að íbúðin okkar er ekkert rosalega vel einangruð. En við lifum þetta af, við eigum allavega nóg af ullafattnaði.
-KristínÞorvalds.



Engin ummæli:
Skrifa ummæli