Við að vera sæt í siglingu um seinustu helgi.
Ég er búin að vera að drukkna í skólanum, 2 verkefni og 1 próf á viku og upptökupróf vikuna eftir! Ég sem hélt að þetta myndi akkurat ekki gerast í lotukerfi, en svona er þetta víst stundum. Hinsvegar var upptökuprófið "mér að kenna" eins og mér fannst fúlt að vanta 2 stig upp á að ná (en maður þurfti 20/34 til að ná sem gefur einkunina 5,9 því hérna í Svíþjóð þýðir 5 aldrei, maður þarf alltaf að ná milli 5,5 - 7 til að ná prófum, ritgerðum og áföngum) þá er ég líka pínu fegin svona eftir á því mér finnst ég kunna efnið mun betur en fyrir 6 vikum þegar ég tók prófið fyrst.
Núna er hinsvegar nýr kúrs byrjaður pedagogik, sem beinþítt væri kennslufræði, en fjallar um allsokar heimspekinga og þeirra kenningar allt frá Sókrates til Ellen Key, verð að segja alveg eins og er að mér finnst fólkheilsufræðin mun áhugaverðari, enda hugsa ég að ég velji það sem aðaláheyrslu á 4 önn. Mér finnstu hún bara einhvernvegin skemmtilegri, en til að læra að hjálpa fólki verðum maður víst að læra hvernig best er að gera það, ef það þýðir að ég verði að lesa um menn sem löbbuðu um götur Aþenu og töluðu við fólk um tilgang lífsins 430 f.Kr so be it!
-KristínÞorvalds.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli