mánudagur, 29. október 2012
29. oktober 2012
Ég sit inn á bókasafni í skólanum og reyni að koma þessari ritgerð sem ég er búinn að böslast við alla helgina niður á blað. Bókasafnið í skólanum er nokkuð töff og þægilegt enda bara byggt 2005 og tekið í notkun 2006. Í miðju hússins, þar sem hljóði lestrarsalurinn og bókasafnið sjálft er aðskilið er risa stór gluggi og akkurat núna sit ég á annari hæð beint á móti glugganum að horfa á snjóinn kyngja(rétt beygt?) niður, ekta jólasnjór! Ef þú spyrð mig þá er þetta pínu huggulegt og lætur mig mest vilja fara heim undir sæng með heitt kakó að horfa á jólamynd. EN hinsvegar er bara október, gat þessi snjór ekki beðið í ca mánuð í viðbót, plís!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli