sunnudagur, 18. nóvember 2012

18. nóvember 2012

Ég sit hérna heima hjá mér og reyni að koma mér í lærigírinn, en gengur frekar hægt. Ég er búin að opna skjalið sem ég þarf að lesa, telst það ekki með?
Annars þá ákvað ég að blogga aðeins um nammidaginn minn í gær, það er nefnilega búið að vera svo mikið tal finnst mér um það að fólk fari á nammidagsfyllerí, missi sig algjörlega á nammidögum og borði kaloríurnar fyrir alla vikuna á laugardögum(eða þeim degi sem fólk ákveður að hafa nammidag). Ég var svoleiðis, believe me! En fyrir ca viku síðan ákvað ég að taka mig á matarlega séð, leifa mér ekki eins mikið, auka prótein inntöku og minka kolvetnin pínu. Ég er samt ekki á kolvetninslitlu mataræði því ég veit að heilinn gengur á kolvetnum(ég er samt ekki að dæma þá sem eru á þannig mataræðum, ég held bara að það myndi ekki virka fyrir mig) ég er samt ekki að borða eins mikið af kolvetnum og ég gerði, því ég hef komist að því að ég er kolvetna fíkill, ef ég borða brauð þá get ég ekki borðað bara eitt, ég get heldur ekki sett lítið smjör(rosalega hátt í fitu) á brauðið. Mér finnst kolvetni góð! Þessvegna ákvað ég að auka virkilega grænmetisinntöku og fá aðalkolvetnin mín úr þeim. 

Í gær var svo fyrsti nammidagurinn síðan ég breytti mataræðinu(því ég tók ekki nammidag seinustu helgi). Ákvað ég því að sýna ykkur hvernig hann var.

Dagurinn byrjaði á morgunmatnum sem var shake sem innhélt grænt te, 1/2 scoop af 100 whey, 1 tsk hveitiklíð, 2 tsk kókos, t tsk hreint kakó, frosin hindber, frosin bláber og pínu hreinan appelsínusafa. (gleymdi að taka mynd)

 Hádegismaturinn: Fullt fullt af grænmeti(laukur, rauðlaukur, púrrulaukur, hvítlaukur, paprika, gulrætur og spínat) steikt á pönnu og kryddað með túrmerik og svörtum pipar og svo u.þ.b. 3 - 4 eggjahvítur helt útá og eldað í gegn áður en gert er scramble. (já diskurinn er stór ég var ekki að borða hrikalega lítið!)

 Ég var búin að ákveða það í vikunni að nammimáltíðin ætti að vera gulróta cupcakes, því þær eru svo hrikalega góðar! Þannig að ég bakaði svoleiðis í gær og setti á þær hvítsúkkulaði frosting með pínu rauðum matarlit í. Bakaði 22 stykki, en við Halli borðuðum bara 9 stykki af þeim(ég 3 hann rest ;) )
Restin fór svo í frystinn, cupcakes sér í poka og restin af frosting-inu í box og líka í frystinn.

 Kvöldmaturinn var svo hrikalega góð heimagerð grænmetissúpa. Selleri, laukur, rauðlaukur, púrrulaukur, hvítlaukur, gulrætur, paparika, sveppir og brokkolí kryddað með túrmerik, svörtumpipar og paprikukryddi steikt saman.  Einn og hálfur líter af vatni og 1 kjúklingateningur og einn grænmetisteningur bætt við og látið sjóða í u.þ.b. 20 mín. Í endann rifum við engifer og kreistum lime úti. Rosalega góð og fersk!

Því það var nammidagur þá langaði mig rosalega mikið í ís um kvöldið, en ég var búin með nammimáltíðina. Þannig að ég setti frosin banana, frosin hindber, casein súkkulaðiprótein og smá hreint kakó í blandarann og gerði hollari gerðina af ís. Oftast borða ég ekki svona mikið á kvöldin, en ég var vakandi lengur en venjulega svo það var ekki hundrað í hættunni.

Svona leit sem sagt nammidagurinn minn út, fullt af hollum og góðum mat með einni svindlmáltíð, einhver gæti sagt að 3 cupcakes væri of mikið, einhverjir gætu sagt að ég væri að borða of lítið og einhverjir gætu sagt að ég sé of ströng við sjálfan mig og þessháttar. En ég veit að mér líður betur í dag en fyrir 10 dögum síðan. Minn líkami funkerar betur núna, er það ekki það sem skiptir máli?

-KristínÞorvalds.


Engin ummæli:

Skrifa ummæli