þriðjudagur, 27. nóvember 2012

27. nóvember 2012

Dí hvað tíminn er fljótur að líða eitthvað. Brjálað að gera í skólanum og svo er ég byrjuð að plana jólin í hausnum. Fyrstu jólin okkar Halla þar sem við erum bara tvö, alein í útlöndum. En það verður bara gaman, ég er alveg viss um það!
Annars er planið í vikunni einnig að skreppa í Ikea og Maxi að kaupa restina af jólaskrautinu og dóti fyrir aðventuna, planið er svo að gera í ár eins og við gerðum í fyrra; Borða fyllta kalkúnabringu og meþví á sunnudaginn og það sem mig hlakkar til! Ég ætla líka að grafa lax fyrir jólin um helgina, sjáum samt alveg til hvernig það gengur.

-KristínÞorvalds.



Engin ummæli:

Skrifa ummæli