föstudagur, 14. desember 2012

14. desember

Ég veit að ég var búin að lofa árángursmyndum 22. des, en verð "því miður" að fresta því. Samt bara um EINN dag, því að ég er að vinna frá 7 - 21,30 þann 22. des en er í fríi allan 23. des. Þannig að myndartaka og ummálsmæling verður þann 23. des og ég hendi myndunum hérna inn um leið og þetta er alls saman tilbúið.

Ég er semsagt að vinna eins og brjálæðingur öll jólin. byrja að vinna 20. des og seinasti vinnudagur er 2. jan. Er í fríi 23.des, 29. des og 1. jan. Rosalega fegin að hafa fengið vinnu, þótt að ég sé að vinna á Aðfangadag, Jóladag, Annan í Jólnum og á Gamlársdag þá er ég bara að vinna 7 - 14 bæði á Aðfangadag og Gamlárs svo ég get eitt kvöldinu með Halla sem verður hvort sem er bara nývaknaður þegar ég kem heim því að hann er að vinna á nóttunni.

Annars er ég að skrifa ritgerð. 1000 orða ritgerð um ,,Pedagogisk frågeställning" eða ,,Kennslufræðileg spurning". Þetta er svooo leiðinlegt! Úff púff, ég hélt að það yrði ekkert mál að hend 1000 orðum á blað, enda bara tæpar 2 síður, en nei nei, þetta er svo flókið að hausinn á mér snýst bara í hringi og ég veit ekkert hvað ég á að bulla á þetta blað. En ég hef alla helgina og allan mánudaginn í þetta, fyrir utan tímann sem fer í bíodate með Halla á morgun, en við ætlum að skella okkur á Hobbitan í 3D í Gävle, mikið sem mig hlakkar til!


-KristínÞorvalds.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli