Ég á að vera að læra. En það er alltaf þannig að maður finnur sér eitthvað allt annað að gera þegar maður á að vera að læra en að læra. Eitt verkefni eftir og svo jólafrí kl 12.00 19. des. Mikið hlakkar mig til, því að eftir hádegi 19. des get ég loksins gefið mér tíma til að tala almennilega til hérna og jólaskreytt.
Við fórum í bíó í gær ég og Halli, ég fékk nefnilega gefins bíómiða frá vinnunni því ég var svo liðtæk í sumar, ég var ein að þeim fáu sem var alltaf til að vinna aukalega eða breyta vöktunum mínum ef þess þurfti svo vinnan gæti mannað vaktirnar rétt. Svo ég ákvað í vikunni að kaupa miða á The Hobbit handa okkur á laugardagskvöldið og bjóða Halla á date, mér finnst nefnilega hrikalega mikilvægt að eiga date kvöld annað slagið, þótt það sé bara góður matur hérna heima og kúr yfir sjónvarpinu á eftir. Við fáum nefnilega ekkert rosalega mörg tækifæri á því þegar skólarnir okkar eru í 80 km fjarlægð frá hvor öðrum og við að læra nánast allan tíman sem við erum vakandi
Ég get með sanni sagt að ég mæli sko hiklaust að þið farið á hana í bíó heima á klakanum þegar hún byrjar í sýningum 26. desember! Myndin tekur u.þ.b 1/3 af bókinni með allskonar aukaefni eftir Tolkien. Komst eiginlega bara í jólaskapið í þessa 3 tíma sem myndin var. Ekki leiðinlegt það!
Nú ætla ég hinsvegar að reyna að halda áfram að læra, þótt að nennan sé engin, hausinn er einfaldlega löngu komin í jólafrí!
Enda þetta á einni
frá sumrinu 2011. Vona innilega að sumarið 2013 verði líkara því sumri en því
sem var núna 2012. Sól, hiti, útihlaup og tan!
-KristinÞorvalds.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli