sunnudagur, 23. desember 2012

Fyrir/Eftir myndir!

Ég ætla að byrja þessa færslu á að segja: Ef þú hefur ekkert fallegt að segja, hafðu það þá bara fyrir sjálfan þig. Ég nenni ekki neikvæðum kommentum svona rétt fyrir jól! ;)

Ég ákvað sem sagt í ágúst 2010 að taka mig á, var algjörlega komin með ógeð af sjálfum mér, hvernig ég borðaði og að ég hreyfði mig ekki neitt. Byrjaði smátt og smátt að breyta mataræðinu til hins betra og hreyfa mig með. 10 kg fóru á fyrstu 4 mánuðunum, án allra bætiefna(Er t.d bara ný byrjuð að borða próteinduft í millimáli eða fyrir eða eftir æfingu). Síðan þá hef ég minkað, en kg talan hefur ekkert farið hrikalega mikið meira niður. Var léttust 59,4 í nóvember 2011, en hef síðan þá byrjað að lyfta þyngra og verið að bæta á mig vöðvamassa ásamt fitutapi. Ég ákvað þessvegna á kíló talan skipti ekki máli, heldur horfa á það sem ég get. Ég get hlaupið 10 km í dag, sem mér hefði ekki dreymt um fyrir rúmum 2 árum síðan. Ég næ að lyfta minni eigin líkmasþyngd í deadlift og hnébeygju! Ég er bara nokkuð sátt þótt að ég eigi pínu fitu eftir á líkamanum, ég er hvergi nærri hætt. Nýtt ár á næsta leiti með nýjum markmiðum og ég get ekki beðið! :)

Fyrri myndirnar eru teknar í janúar 2010 þegar ég var að byrja í CrossFit og ætlaði að taka mig hrikalega á! En það gekk ekki, haha! Því ég byraði að hreyfa mig alveg 3x í viku en breytti mataræðinu ekki neitt, svo þegar grunnnámskeiðið var búið þá mætti ég bara annaðslagið en ekkert að viti fyrr en í Ágúst 2010 þegar CrossFit ásamt hreinu skyri urðu bestu vinir mínir! Ég var í kringum 70 kg í jan 2010 en þyngst var ég í Ágúst 2010 74,4 kg. Ég hugsaði ekkert út í það að taka fyrir myndir þá, þannig að myndirnar frá því í janúar verða að duga.

 Fyrirmynd jan 2010 - Eftir mynd Des 2012. 

Líður mun betur í eigin líkama þrátt fyrir að smá pita sé enn eftir. 

Einn stærsti kosturinn er samt sá að mér er hætt að vera eins rosalega illt í bakniu, það réttist líka út mér þegar ég fór að styrkja bakið.

Læt þetta duga. Vona að þið eigið góð jól og leyfið ykkur smá, það er bara jól 1x á ári og ef maður fer eftir 80% reglunni ætti maður ekkert að þyngjast!

-KristínÞorvalds.


8 ummæli:

  1. Vá! Hellings munur :) Dugleg ertu stelpa :D Gleðileg jól til þín <3
    Kveðja Óla Maja

    SvaraEyða
  2. VÁÁÁÁÁ!!! Frábært! innilega til hamingju með árangurinn! þú verður sko góð fyrirmynd! Ég tók sjálfa mig í gegn í byrjun sept,tók 2 mánaða átak og léttist um tæp 12 kg. ætla svo að halda áfram eftir áramót! :) Mun sko pott þétt halda áfram að fylgjast með þér. Geturu kannski póstað einhverjum góðum hollum uppskriftum? Það er ekkert svo hlaupið að því að finna svoleiðis (matvonda ég!)

    Annars Gleðileg jól! Vona að þú hafir það sem allra best!
    Kv Hrefna Katrín ;)

    SvaraEyða
    Svör
    1. Takk takk! Alltaf gaman að fá svona góð komment, ég hef hent nokkrum uppskriftum inn og plana að halda því áfram :)

      Eyða
  3. Hæ þetta er Katrín :) Mikið rosalega ertu dugleg! Svaka munur :D haltu áfram að standa þig svona vel :) GLEÐILEG JÓL!!! Ykkar verður sárt saknað hér á bæ :* Við Gunnar hlökkum bara voða mikið til 22.febrúar! :)

    SvaraEyða
    Svör
    1. Við söknuðum ykkar líka fullt og getum ekki beðið eftir því að fá ykkur í heimsókn :)

      Eyða
  4. Vaaá! Flottur árangur hjá þér, þú gefur mér alveg spark í rassin að fara að taka mig á með þessum myndum. Lítur ekkert smá vel út :)Kv. Katla Hrund

    SvaraEyða
    Svör
    1. Takk, þetta hefur ekki alltaf verið létt. Gott að maður getur verið spark í rassinn á einhverjum með þessu :)

      Eyða