Alveg búin á því en hrikalega sátt eftir ca 21 km
hjólatúr í morgun
×××
Dagurinn
byrjaði vel, ég skellti í mig Amino Energy, Glutamine og Spirulina á meðan
Halli borðaði morgunmatinn sinn. Svo skelltum við okkur út að hjóla, hjóluðum
alla leiðina til Forsbacka og til baka sem gerir ca 21 km á rétt rúmum
klukkutíma. Langt síðan ég hef hjólað svona langt og get ég eiginlega ekki
beðið eftir að hjóla meira í sumar. Erum svo meira og minna búin að ligga í leti
í allan dag, kúra og njóta tímans saman því Halli er að fara að vinna í
sumarbúðum í 6 daga, fer á morgun og kemur aftur á miðvikudaginn. Þannig að ég
verð ein heima í 6 daga, sem ég hef aldrei verið áður. Ég er búin að plana
nokkra hluti til að dúlla mér við á meðan hann er í burtu, svo er ég að vinna á
föstudagskvöldið og allan þriðjudaginn, þannig að ég trúi ekki örðu en að tíminn
verði fljótur að líða!
-KristínÞorvalds.


Engin ummæli:
Skrifa ummæli