föstudagur, 14. júní 2013

Protein bar

Halli er að fara að vinna í sumarbúðum fyrir fimleikafélagið hérna í Sandviken í 5 daga og fer í dag. Hann veit að hann fær mat 4 sinnum yfir daginn en hann hefur hinsverar enga hugmynd um gæði matarins. Þessvegna ákváðum við í gær að henda í prótein bar sem hann gæti tekið með sér. Hrikalega einfallt og rosalega gott.

Mér finnst best að hafa mína bita litla svo ég geti fengið mér einn munnbita þegar ég kreiva eitthvað sætt.

Protein bars:

Í stóra skál blandar maður saman:
3,5 dl haframjöl/Speltmjöl/Rúgmjöl
1,5 scoopa Casein prótein ég nota þetta með Chocolete supreme bragði
1,5 scoopa Whey 100 ég nota þetta með súkkulaði bagði
Hnetur eftir smekk(ég notaði slatta af pecan- og hesilhnetum)
Slatti kanill
Rúm 1 msk hreint kakó

Í minni skál blandar maður saman:
Vel góðar 2 msk hreint hnetusmjör
2 msk hunang
pínu olía (til að auka góðar fitur, má sleppa)
2 - 2,5 dl mjólk(létt, möndlu, soya)

Þessu er svo blandað öllu saman, þrýst í form og sett inn í ískáp í ca 25 mín. Þá er þetta skori í Bars sem þú villt. Halli tók með sér 5 frekar stór bars sem var ca 2/3 af uppskriftinni, ég bara gleymdi að taka mynd.

Það eru til ógrynni af uppskriftum af prótein bars á netinu, einfaldast er að blanda saman hnetusmjöri, próteini, hafra/spelt/rúgmjöli og pínu vatni. En Halla langaði í eitthvað sem innihélt nægar kaloríur þannig að þessar eru fullkomnar. En maður verður að passa sig, þetta er fuuuullt af kaloríum, hinsvegar er einn munnbiti alveg nóg til að slökkva á sætindarþörfinni.


-KristínÞorvalds.


Engin ummæli:

Skrifa ummæli