fimmtudagur, 18. júlí 2013

Sumar - mikið að gera og hafa gaman!

Mér finnst svo gaman að skoða gamlar myndir - Við systurnar ásammt Brynjari og Sindra að fá kvöldkaffi á Hornbrekkuveginum hjá ömmu og afa.

×××

Það er búið að vera rosalega mikið að gera undanfarna daga. Fyrst fengum við tengdó í heimsókn og brölluðum ýmislegt með þeim. Núna er mamma, Gúðrún systir og Hann Valdís í heimsók hjá okkur og verða í viku í viðbót og við erum búin að gera margt og mikið saman. Við erum t.d. búin að skreppa í Leksand Sommarland, skoða rosalega marga leikvelli og tína villt bláber í skóginum. Þetta allt og vinna er ástæðan fyrir bloggleysi sumarsins - já ég veit, mér finnst heldur ekkert gaman að lesa afsakanir en svona er þetta.

Núna er hinsvegar bara einn vinnudagur eftir fyrir helgarfrí, sem er ljúft. Planið er að hafa það ljúft með fjölskyldunnim kúkja kanski í sund og göngutúra, hafa það bara yfirhöfuð næs. Ég vona að sumarið ykkar sé gott, í rigninguni - ég heilsa allavega úr sólinni og hitanum!

-KristínÞorvalds.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli