fimmtudagur, 1. ágúst 2013

Fimmtudagur til frama


Seinasti mánuðurinn til að fá fersk sænsk ber, ætla að nýta mér það i botn!

×××

Loksins frí! Þótt það sé bara í einn dag. Það er það eina sem ég hugsa um akkurat núna. Ég var í vinnunni 7 - 14 í morgun og er í fríi alveg þar til kl 7 á laugardagsmorgun. Vinna alla helgina, og þá ég meina alla helgina. 7 - 22 á laugardaginn(með hléi 13 - 17) og 7 - 21,30 á sunnudaginn(með hléi 13 - 16,30). Ég kvarta hinsvegar ekki, því að mér þykir vinnan mín skemmtileg og svo á ég líka bara 7 daga eftir í vinnunna í heildina. Frí á mánudaginn og vinna svo þriðjudag til laugardags og sumarfrí frá 21,30 á laugardagskvöldinu!

Nú ligg ég hinsvegar bara í sófanum með annað augað á So you think you can dance? og plana að að fara ekkert of seint af sofa. Nýta daginn á morgun vel í æfingar og matarplönun fyrir helgina, því ekki fer ég heim í 4 tíma hléi. Vona að verslunarhelgina ykkar verði góð og munið að fara hægt um gleðinnar dyr ;)

-KristínÞorvalds.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli