fimmtudagur, 15. ágúst 2013

Grautur með ferskju og eggjahvítuflöffi

Ég er rosalega vanaföst þegar það kemur að morgunmatnum mínum. Núna í bráðum ár hef ég nánast borðað sama morgunmatinn alla morgna. Sá morgunmatur samanstendur af vatni, pínu hreinum safa, frosnum berjum, hveitikími, chiafræjum, kókos, kakó og próteini. Allt sett í blandarann og drukkið. Núna í sumar hef ég hinsvegar viljað breyta til, prófa eitthvað nýtt. Því hef ég verið að prófa mig áfram með grautgerð. Ég geri mér graut úr dinkelflingor, sem eru speltmjöl, en ég hef talað um það áður hérna á blogginu. Í morgun fullkomnaðist svo uppskriftin og ákvað ég að deila henni með ykkur.


Ekki besta mynd i heimi, en hrikalega gott!


Speltgrautur

1dl speltmjöl (hægt að nota haframjöl, rúgmjöl eða það sem þú villt gera grautinn þinn úr)
2 dl vatn
Vel af kanil
Pínu engiferkrydd
Pínu negull

Speltmjöl og vatn sett í pott og eldað saman í graut, þegar grauturinn er tillbúin er kryddunum bætt útí og öllu blandað vel saman. 

Ég skar svo niður í þunna bita 1/2 ferskju (og át hinn helminginn ;)) og dreyfði yfir grautinn og toppaði þetta með eggjahvítuflöffi. Oftast hef ég nú bara sett mjólk út á grautinn en þessa dagana er ég að prófa að sleppa alveg mjólkinni. 

Eggjahvítuflöff af einföldustu gerð

1 eggjahvíta
ca 1 msk sukrin eða önnur sæta
1/2 tsk hrein vanilla.

Eggjahvítan er þeytt þar til hún er orðin flöffy og fín, þá er sukrin og vanillu bætt út í og hrært þar til áferðin fer að minna á marengs

Ég gerði eggjahvítuflöffið á meðan grauturinn sauð, og nú sit ég í sófanum að borða og trúi því varla sjalf hvað þetta er gott! Nánast eins og pæj!

Svo er náttúrulega hægt að gera allskonar útgáfur af honum, hafa aðra ávexti, sleppa kryddunum eða bæta öðrum kryddum við. Ég ætla allavega að halda áfram að prófa mig áfram, því að ég held að það sé fínt að breyta til annarslagið.


-KristínÞorvalds.



Engin ummæli:

Skrifa ummæli