Ég vann seinustu vaktina mína í sumar á laugardagskvöldið. Eða réttara sagt seinustu plönuðu vaktina því ég fæ ennþá sms um aukavaktir svona ef mér langar til að vinna aðeins meira. Annars er vinnusumarið búið að vera gott, eða sumarið yfirhöfuð bara. Sól og blíða og lítið um rigninu. Erum reyndar búin að fá hellings rigningu, þrumur og eldingar núna seinustu viku en sólin lét sjá sig aftur í dag með 22°C og logni, bara ljúft.
Núna er planið að slappa af, æfa, taka íbúðina í nefið og kanski mála eins og eitt herbeggi. Ég vona að sumarið ykkar sé búið að vera jafn yndislegt og mitt, og restin verði ekki síðri! Enda þetta á einu sem er að repeat þessa dagana.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli