miðvikudagur, 18. september 2013

Áminning


Nú er ég búin að vera veik í viku og því ekkert æft almennilega. Tók góða æfingu á föstudaginn seinasta, þegar ég hélt að ég væri orðin nógu frísk. En strax á laugardaginn lagðist ég svo bara aftur með hálsbólgu og fullt af hori í nös. Ég var svo fúl, þurfti að læra fullt og undirbúa fyrsta core tímann en leið samt svo illa, að ég passaði nákvæmlega ekki neitt hvað fór ofan í mig. Í dag er þessvegna ekki leifilegt neitt sem hægt er að kalla óhollt. Planið er að drekka fullt af vatni og borða fullt af ávöxtum og grænmeti. Engin hreyfing á dagskrá þar sem röddinn er enþá týnd, en ég kenndi samt core tíman í gær og það gekk bara vel!

Á svona dögum, þar sem sætindatlöngunin drepur mig næstum, þá finnst mér gott að kíkja á nokkrar svona myndir og minna mig á hvað mig langar virkilega í. Að mér líður miklu betur af því að borða hreinan og góðan mat en leifa mér óhollara í hófi.








-KristínÞorvalds.



Engin ummæli:

Skrifa ummæli