miðvikudagur, 11. september 2013

Nýtt og spennandi


Ég viðurkenni að ég hef aldrei fílað Miley neitt sérstaklega. En ég er að fíla þetta lag, svo lengi sem ég horfi ekki á myndbandið.
Ég er heima, veik, sem ég er svo sem ekkert að fíla neitt sérstaklega heldur. En þetta er nú ekkert alvarlegt. Illt í hausnum og hálsinum, kenni Halla algjörlega um þetta sem var slappur um helgina. 
Plan dagsins í dag er að sitja heima og læra, kúra mig kanski aðeins og ná þessum skít úr mér. Því það gengur ekki að verða veik neitt mikið lengur. Aðalega samt þvi að í seinustu viku fékk ég nýja vinnu, ég er bæði spennt og rosalega stressuð. Ég er semstagt nýji Core þjálfarinn hjá Gymmix hérna í Sandviken. Gymmix eru hóptímar sem fimleikafélagið er með og finnst mér þetta rosalega spennandi. Þetta er ekki mikið vinna, þjálfun 1x í viku í klukkutíma í senn og byrja ég á þriðjudaginn í næstu viku. Þetta verður awesome, ég veit það, aðalega samt því ég er búin að ákveða það.
Nú ætla ég hinsvegar að leggja lokahönd á matarplan fyrir ólétta konu og "hitta" svo hópinn minn á chattinu á facebook í meiri lærdóm. Eigið góðan dag!


-KristínÞorvalds.


Engin ummæli:

Skrifa ummæli