
Ein sæt af mömmu með stelpunum sínum í Sandviken í sumar.
×××
Ég á svo ótrúlega mikið af góðu fólki að. Fjölskylda og vinir sem standa við bakið á mér alltaf og mér þykir svo ótrúlega vænt um. Þótt að það séu hundruðir kílómetra á milli okkar flestra dags daglega þá þarf ekki meira en eitt sms frá systur minni eða smá skypespjall við mömmu, pabba, ömmur, afa og góða vini til að dagurinn minn verði betri. Ég sakna þeirra ótrúlega mikið, en það er ekki svo langt í jólin og að ég geti knúsað þau öll rosalega fast. Ég hugsa að ég sé bara með pínu heimþrá í dag, en það er líka allt í lagi stundum.
Nú er planið að taka góða fóta og axlaræfingu, læra og njóta dagsins. Vona að helgin ykkar sé góð, ég ætla allavega að njóta minnar.
-KristínÞorvalds.
p.s. þú sem hafðir ekkert fallegt að segja við fyrir/eftir myndirnar mínar og ákvaðst að kommenta svona ljótt í nótt. Ég eyddi kommentinu þínu og bið þig hér eftir að kommenta ekki ef þú hefur ekkert fallegt að segja.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli