sunnudagur, 13. október 2013

Bless bless mjólk

Ég sé fram á erfiðar vikur framundan. Ég tók þá ákvörðun í gær að hætta alveg að drekka og borða mjólkurafurðir. Eftir tal við mömmu, sem sagði mér að mér hafi aldrei liðið vel af mjólk þegar ég var yngri, og leit á google tók ég ákvörðunina. Mér sem finnst mjólk svo góð, en er nokkuð viss um að það sé ekkert virði þess að liða jafn illa og mér er búið að líða.

Í nokkuð langan tíma núna er ég búin að vera með krónísk kokslím, já ég veit það hljómar ekki vel. En svo í mai á þessu ári virtist ég alltaf vera með köfnunartilfinningu, fannst eins og ég næði aldrei almennilega andanum, fór til læknins sem sagði að þetta væri líklega frjókornaofnæmi. Ég fékk astmapúst sem hjálpaði takmarkað. Gat ekki hlaupið lengur, eða lyft þungt án þess að kvíla vel og lengi á milli setta til að ná andanum almennilega. Eftir heilt sumar af að líða illa googlaði ég aðeins og talaði við mömmu og í framhaldi af því ákvað ég að taka út mjólk, whey prótein, jógúrt og ost. Mér byrjaði að líða betur og fann það að á nammidögum, þegar ég fékk mér súkkulaði, ís, heitt kakó eða eitthvað sem innihélt mjólk að þá komu öll einkennin aftur. Þannig að ég vikunni er ég búin að pæla mikið í þessu og á föstudaginn tók ég ákvörðun. Enginn meiri mjólk. Frá og með deginum í dag.

Ég "dattí það" í gær. Fékk mér pizzu og heimagerðan bragðaref. Ákvað að leifa mér mjólk á þessum nammidegi og svo ekki meira það sem eftir er að árinu, ég er þunn eftir því í dag. Þetta verður erfitt, því það er mjólk í svo rosalega mörgu! Ekkert meira súkkulaði, pizzur, flögur(já ég skoðaði það, flesta flögur eru sætaðar með laktósa+ öðrun sykri), kökur, jógúrt, skyr, eða morgun boozt.

Ég væri að ljuga ef ég segði að mér kvíði ekki fyrir, sérstaklega að fara heim í allar jólakökurnar um jólin. Líka pínu skrítið að hugsa til þess að ég fái engan vestubærjarís! En þetta venst, ætla taka núna næstu vikur að læra inná þetta, skipurleggja mig vel og vona að nú hætti mér að líða illa.

-KristínÞorvalds.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli