Það er pínu erfitt að hætta að borða eitthvað, sérstaklega þegar maður hefur borðað það alla sína ævi. Fyrsti nammidagurinn í dag síðan ég hætti að drekka mjólk og mér fannst hálf fúllt að geta ekki fengið mér súkkulaði. Súkkulaði kerlingin sem ég er, þrátt fyrir að vera enginn kerling.
Annars er allt að komast í rútínu aftur. Byrjuð að vakna á morgnana til að æfa og tek seinniparst æfingu 2 - 3 sinnum í viku. Ég er hinsvegar að drukkna í skólanum og verður því ljúft að kíkja aðeins út að dansa með stelpunum í bekknum á morgun og huga um eitthvað annað en lærdóm. Ég verð hinsvegar edrú gellan, ég er bara ekki í neinu stuði fyrir áfengi núna.
Ég er líka með hugmynd af hollum gullrótarmuffins í hausnum sem ég kanski prófa um helgina og hendi þá inn uppskrift. Vona að helgin ykkar verður góð, mín fer í lestur, tiltekt og pínu djamm.
-KristínÞorvalds.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli