Það er án alls gríns búið að vera brjálað að gera í skólanum seinustu vikurnar. Ég hef ekki náð að skipurleggja mig nógu vel því miður og því ekki náð eins mörgum æfingum og ég hefði viljað yfir vikuna. Ég verð bara að vera strangari við sjálfan mig, og ekki leggjast í sófan þegar ég kem heim í stað þess að leggjast í sófann.
Mataræðið hefur hinsvegar gengið smooth og mun auðveldara en ég héllt að hætta með mjólkurvörur. Ég verð bara að vera dugleg að lesa aftan á allt sem ég kaupi. Eitt sem ég hef samt tekið eftir, það er hvað það eru til mörg nöfn yfir eitthvað sem er mjólkurtengt. Ég er t.d. ekki viss um að ég hafi lagt frá mér einn hlut í búðinni í gær nema það að ég vissi að casein er mjóljurprótein. Alveg ótrúlegt hvað það geta verið til mörg nöfn yfir einn og sama hlutinn!
Núna sit ég hinsvegar með álpappír í hárinu að prófa DIY lit með matarlit og hárnæringu. Hendi örugglega inn mynd þegar ég veit hvernig þetta kemur út. Spennandi!
-KristínÞorvalds.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli