Hefði ekkert á móti einum svona í vetur þegar íbúðin er köld.
Það er ekkert rosalega kallt úti og það er ekki kominn snjór. En ég verð að viðurkenna að þegar það er orðið svona dimmt meirihluta dagsins þá læðist pínu jólafílingur í mig. Ég er samt nokkuð viss um að það sé bara vegna þess hvað mig er farið að hlakka til að fara heim um jólin. Rúmar sex vikur í það og ég get ekki beðið.
Þegar það er dimmt úti og frekar kallt inn í íbúðinni er rosalega kósý að liggja undir teppi með kveikt á fullt af kertum og lesa góða bók. Það er nákvæmlega það sem ég ætla að fara að gera akkurat núna. Vona að þið eigið góða viku!
-KristínÞorvalds.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli