Erlend blogg:
Alexandra BringAlexandra er sænsk lífstílsbloggari sem bloggar mest um hreyfigu, mat og ræktarföt. Einstaka sinn persónuleg blogg. Mér finnst bloggstílinn hennar hrikalega skemmtilegur og gaman að fylgjast með henni. Bloggið er bæði á sæsnku og ensku.
Victoria Törnegren
Victoria er litla systir Alexöndru og er sænsk tískubloggari. Tískublogg eru rosalega vinsælt í Svíþjóð þessa dagana og slatti af stelpum eru að græða alveg slatta af penning út á það að blogga. Mér finnst aðalega skemmtilegt að fylgjast með henni því að mér finnst stílinn hennar hrikalega töff, þótt að ég gæti kanski ekki hugsað mér að ganga í honum. Bloggið er bæði á sænsku og ensku.
Little b
Brittany er bandarísur lífstílsbloggari sem bloggar um líf sitt í hnotuskurn. Hún leggur upp fullt af clean eating uppskriftum og hvernig hún er að æfa. Ég datt inn á bloggið hennar fyrir ca 2 árum þegar ég var að google uppskriftir og hef fylgst með henni síðan.
Eirín Kristiansen
Norsk stelpa sem er nýflutt til New York í skóla. Bloggar um lífið, tísku, æfingar og mat. Skemmtilegt blogg að fylgjast með ef maður skilur norskuna.
Íslensk blogg:
Svo eru svo mörg fleiri, sem ég dett inn á af og til, en þetta eru mín uppáhalds. Þessi eru þau sem ég skoða allavega 1 - 2x í viku. Endilega látið mig vita ef þið vitið um einhver skemmtileg blogg. Alltaf gaman að lesa eitthvað nýtt!
-KristínÞorvalds.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli