Ég ætla að segja ykkur leyndarmál, svo lengi sem þið lofið að kjafta ekki í neinn. Ég er leynilegur Star Wars aðdáandi. Eða ekki svo leynilegur eftir þessa færslu. Ég get ekki talið það hversu oft ég hef horft á myndirnar, samt episode IV - VI oftar en episode I - III. Þessvegna kanski ekki skrítið að uppáhalds quoteið mitt sé eftir engann annan en litla græna manninn í Star Wars. Yoda sagði: No. Try not. Do or do not, there is no try.
Þetta er svo satt! Ekki reyna. Maður verður að ákveða hvað maður ætlar að gera og gera það. Ef það mistekst þá geriru það aftur. Ég er allavega ákveðin í því að hér eftir að lifa eftir þessu eins mikið og ég get. Hætta að hugsa alltaf ,,ég reyni" í staðinn fyrir að hugsa ,,ég geri" eða ,,ég get"!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli