Ég er samt að ég held búin að finna lausnina á þessu vandamáli; Björn Axén organic deep conditioner sensitive scalp sem ég djúpnæri á mér hárið með 2 - 3 í mánuðu og Björn Axén organic conditioner sensitve scalp sem ég nota svo nokkrum sinnum í viku. Þetta hefur gjör breytt á mér hárinu! Nú þarf ég ekki að nota Fungural nema ca 2 sinnum í viku sem þýðir að hárið á mér er mun mýkra og líflegra en það var. Núna get ég líka haft það oftar slegið en ekki alltaf í teygju eða hnút. Algjör snilld sem ég mæli með að fólk með þurran hársvörð prófi þ.e.a.s. ef þetta fæst heima á Íslandi. Eini gallin er bara hversu dýrt þetta er, en það er algjörlega þess virði!
-KristínÞorvalds.


Engin ummæli:
Skrifa ummæli